22. maí 2008 klukkan 21:07
Veit ekki hvað margir eru að lesa þetta en þeir sem gera það mættu láta berast að búið er að setja upp glæsilegt umhverfi fyrir m.fl. BÍ/Bolungarvíkur á umfb.is.
Þar er hægt að sjá leiki sumarsins, leikmenn, þjálfara ásamt því sem ýmsar upplýsingar koma á síðuna um leikmenn og leiki þegar þeim er lokið. Einnig býður kerfið uppá beina netlýsingu. Ég er að spá í að prófa þetta á laugardaginn ef hægt er og þá geta menn skellt sér á umfb.is og fylgst með leiknum. Mæli þó ekki með að leikmenn fylgist með leiknum þar.
Ef einhver hefur áhuga tölvuvinnu og að hjálpa til við þetta í sumar þá endilega hafið samband. Þetta er einfalt kerfi, á íslensku og gerir Ísfirðingum og Bolvíkingum sem eru brottfluttir að fylgjast með gangi mála í sumar. Eins heimamönnum ef einhver í Borginni væri til í að sjá um útileiki.
Ef þið hafið áhuga eða vitið um einhvern sem hefur áhuga setjið ykkur í samband við mig jonnil@simnet.is
Jónas Leifur Sigursteinsson