Prófíll

  • Nafn: BÍ/Bolungarvík
  • Stađur: Ísafjörđur/Bolungarvík

Auglýsing

Könnun

Í hvađa sćti endar Bi/Bolungarvík í 2. deildinni í sumar?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Ćfingar

07. október 2008 klukkan 13:10
Sælir drengir, tilgangur þessarar færslu er einungis sá að forvitnast um hvort hugur sé í mönnum að fara að sprikla eitthvað í fótbolta aftur, ég persónulega er orðinn þreyttur á hreyfingarleysinu, og vill ég bara fá svör um hvort menn séu tilbúnir að mæta ef einhverjar léttar æfingar munu hefjast á næstunni? Því engin nennir að fara að gera eitthvað ef bara 4-5 manns mæta.

Hver er hugurinn? á að fara af stað með eitthvað?

Sigurgeir Sv.
Leikmaður BÍ/Bolungarvíkur
BÍ/Bolungarvík

Skírn

02. október 2008 klukkan 23:36
Nú er komið að því að gefa okkur nafn.  Hugmyndin er sú að þið komið með uppástungur og setjið í komments og síðan verður kosið á milli bestu tillaganna.  Þau nöfn sem eru komin á blað nú þegar eru

BÍB - Boltafélag Ísafjarðar og Bolungarvíkur
KBÍ/KÍB - Knattspyrnufélag Bolungarvíkur og Ísafjarðar
ÍBÍ - Íþróttafélag Bolungarvíkur og Ísafjarðar
BÍ/Bolungarvík

Bikarleikur - Ungir vs Gamlir

19. september 2008 klukkan 01:18
Jæja drengir, nú fer að líða að stærsta leik ársins. Leikurinn verður spilaður á Torfnesi á laugardaginn kl 14. Látið boð út ganga, við viljum fá áhorfendur á þennan leik.

Leikið verður í 2x 30 mín. Ef svo ólíklega vill til að ungir nái að halda jöfnu þegar venjulegum leiktíma er lokið var hugmyndin að fara beint í vítaspyrnukeppni. Það er ekki einungis spilað upp á stoltið heldur eru vegleg verðlaun, bæði verðlaunapeningar og bikar. Þetta er því leikur sem menn ættu að taka alvarlega. Fyrir leik verður tekin hópmynd þar sem allir verða í keppnisbúningi.

Liðin eru þannig skipuð:

Ungir

Andri, Emil, Ásgeir Gísla, Danni Deco, Aggi, Þrölli P, Haffi, Sigurgeir (C), Óttar Helgi, Hákon, Stefan, Jóhann Mar

Gamlir

Jói Bakari, Dóri Skarp, Gunni, Óttar (C), Dimitar, Ásgeir Guðmunds, Addi, Steini, Sigurjón, Sammi, Gulli, Ívar Péturs

Dómari leiksins verður Magnús Helgi Guðmundsson.

Mæting kl 13.00 í vallarhúsið á Torfnesi.



Þessi bíll verður á svæðinu til að huga að ungum þegar stefnir í óefni hjá þeim.....

Þeir sem eiga eftir að greiða atkvæði í kosningu á besta leikmanni og efnilegasta leikmanni BÍ/Bolungarvíkur verða að gera það fyrir kl 12 á hádegi á morgun, föstudag. Það geriði með því að senda sms í síma 8654801.

Hvílið ykkur vel, þetta verður stór dagur í lífi okkar allra.

Óttar

p.s við óskum eftir mótspyrnu
BÍ/Bolungarvík

Tilkynning #2

18. september 2008 klukkan 11:54
Jæja strákar þá fer að líða að þessu, lokahófið að skella á með öllu tilheyrandi. Það verður heljarinnar dagskrá á laugardaginn í kringum bikarúrslitaleikinn, Ungir vs Gamlir. Þetta verður alvöru, við spilum í búningunum (Gulli var víst búinn að panta varabúninginn fyrir Gamla), með dómara og línuverði og ætlum að auglýsa leikinn. Það verður svo að sjálfsögðu verðlaunaafhending strax eftir leik. Það eru auðvitað einhverjir tæpir á aldri  sem hafa spilað bæði með Ungum og Gömlum í sumar (sell outs). Liðskipan verður hinsvegar komin í ljós í kvöld eða á morgun og mun verða sett á netið um leið og komið er á hreint hverjir verða með.


Samúel Sigurjón Samúelsson krefst þess að þeir ykkar sem eru í handjárnum láti sig vita hverjir ætla að mæta með dömuna upp á arminn. Það væri heldur ekki verra ef þeir leikmenn sem eru staddir sunnar en Hólmavík láti vita hvort þeir ætli ekki örugglega að mæta. Helst vill hann fá mail á sammisamm@simnet.is (það er líka hægt að ná í hann í síma 866-5300).

Dagskrá laugardagsins verður sett inn á morgun. Ef þið hafið einhverjar spurningar, óskir eða tillögur, hafið samband við mig (Óttar) í síma 867-7788, eða Gulla í 865-4801. Ef ykkur líður illa og þurfið að létta á ykkur (áhyggjum, vatni eða saur) þá er númerið hjá Hákoni 845-6969.

Formaður skemmtinefndar

Ps. æfing kl.17:30 í dag á Torfnesi
BÍ/Bolungarvík

Tilkynning

17. september 2008 klukkan 18:58
Sælir Félagar.

Nú er hafin kosning á Leikmanni ársins og efnilegasta leikmanni ársins hjá BÍ/Bolungarvíkur.

Allir leikmenn liðsins skulu kjósa og senda svo annaðhvort með smáskilaboðum símleiðis eða með tölvusendibréfi.

Kosningaseðlar skulu sendast á : gullanovic@hotmail.com eða 8654801.

þakka fyrir mig.
BÍ/Bolungarvík

Myndir af leiknum á laugardaginn

16. september 2008 klukkan 10:00
Einn dyggasti stuðningsmaður BÍ/Bolungarvíkur, Guðmundur Heiðar Gunnarsson tók 105 myndir af leiknum á laugardaginn og hægt er að skoða þær á síðunni hans.  Slóðin þar er www.123.is/hammond

endilega kíkið á það.  Fullt af flottum myndum hjá honum.
BÍ/Bolungarvík

Hin Hliđin

14. september 2008 klukkan 22:39
Sigurvin er búinn að skila af sér hinni hliðinni.
BÍ/Bolungarvík

Úrslitaleikurinn!

12. september 2008 klukkan 11:15
BÍ/Bolungarvík

2.deild

09. september 2008 klukkan 19:58
BÍ/Bolungarvík er komið í 2. deild eftir sannfærandi sigur á KV á KV-park (KR-völlur).  Glæsilegur árangur strákar og nú er bara að klára dæmið og koma með dollu heim.  Frábært, allir stoltir af ykkur og allir standa með ykkur í þessu.  Snillingar allir sem einn.




ÁFRAM BÍ/BOLUNGARVÍK


BÍ/Bolungarvík

Hin Hliđin

26. ágúst 2008 klukkan 12:34
Jæja þá er Dóri loksins búinn að skila af sér hinni hliðinni og skorar hann á hinn eina sanna stuðningsmann að vera næstan.
BÍ/Bolungarvík