Athugasemd frá Stjórn
Það vantar ennþá síðan úr síðasta leik, eða Eldri - Yngri leiknum þannig að það hljóta einhverjír leikmenn að liggja á annað hvort sokkum eða stuttbuxum.
Stjórn BÍ/Bolungarvíkur

Sælar. Hópurinn sem fer suður er eftirfarandi:
Addi
Andri Fester
Binni
Danni Dego
Emil "El Nino"
Guðni Puðni Páll
Gulli Diablo
Hasar Haffi
Hákon "Skítakonfekt"
Kári
Pétur Geir
Robbi
Rúnar Púnar
Sigurgeir El Capitan
Þeir sem eru staðfestir bílstjórar eru Haffi, Rúnar og Sigurgeir, en líklega bætist einn bílstjóri við svo að við þurfum ekki að vera 5 í hverjum bíl. Þannig að ef einhver vill ólmur keyra þá er honum guð velkomið að bjóða sig fram. Við sjáum bara um það sjálfir að hópa okkur saman í bíla. Æskilegt er að allir verði lagðir af stað á hádegi á föstudaginn. Þeir sem hitta okkur svo fyrir sunnan eru:
Ásgeir
Egill S. Ágústsson
Goran
Gunnar Már
Óttar
Þrölli Pé
Leikið verður á móti Hamar í Reykjaneshöllinni kl.16:00 á laugardeginum og gegn KV í Kórnum kl.14:00 á sunnudaginn. Mæting klukkutíma og korteri fyrir leik.
Afar mikilvægt er fyrir þá sem eru í hóp að mæta á æfinguna næstkomandi fimmtudag, Dragan ætlar að láta okkur hafa eitthvað varðandi ferðina.
Það sem þarf að hafa með er:
-Takkaskór/Gervigrasskór
-Legghlífar
-Handklæði
-Nærföt til skiptanna
-Nesti milli leikja
-Pening fyrir mat
Æskilegast er að vasapeningur sé á milli 1000-1500 krónur
Með fótboltakveðju Gunnlaugur "Diablo" Jónasson